Þá er komið nýtt ár, ný önn og ný verkefni. Ég hef verið afar löt að blogga en ég ætla bara að hefja leikinn á nýju ári 2009.
Ég byrjaði árið á því að vera lasin .. það var ekki fjör. Reyndar varð ég ekki lasin fyrren annan í nýári, svo tæknilega séð byrjaði ég nýja árið í faðmi fjölskyldunnar á gamlárs
Ég fór á sýklalyf í næstum tvær vikur en er öll að braggast núna sem betur fer J Ég byrjaði í skólanum á mánudaginn og það var frábært. Ég er nottla svo rugluð að ég elska skólann og fann bara þegar ég gekk inn hvað ég saknaði hans í þennan eina mánuð
hehe saknaði krakkana og andrúmsloftsins. Ég verð í þremur áföngum þessa önnina. Það er samskipti og stjórnun og svo vettvangstengda valið þar sem ég verð með Steinunni og Lenu. Þar ætlum við stöllur að innleiða barnasáttmálann inn á leikskóla hér í bæ. Þetta verður án efa mjög skemmtilegt, en að sama skapi ótrúlega krefjandi og erfitt. Ég hlakka þó til að vinna með þetta og held þetta verði bara fjör. Samhliða þessu verð ég svo að skrifa B.ed ritgerð með Lenu minni þar sem við höfum ákveðið að fjalla um samskipti kennara og barna. Einnig mjög krefjandi og tímafrekt en við ætlum að hafa gaman af þessu
Við verðum þó það mikið saman að ef til vill förum við að hárreyta hvor aðra! En vonandi mun vinskapur okkar standa af sér þennan stressstorm sem er í vændum
Ég verð ekki bara í skólanum því ég og Steinunn Fríður höfum fjárfest í árskorti í Veggsport takk fyrir! Nú skal bara verða helköttaður og feiknaformi með hjálp skvassins! Að auki reyni ég að vinna á leikskólanum, vinn bara 6 tíma á viku og finnst ég varla hafa tíma til þess
Svo það verður mikið að gera hjá mér fram í maí....alllt á fullu.
Janúar er nú meiri afmælismánuðurinn... á morgun ætla ég að skella mér í afmæli Eddu minnar...þar mun ég drekka og drekka, enda hef ég ekki drukkið í rúmlega mánuð. Ég mun því skemmta mér aaaafskaplega vel eins og er von og vísa með Eddu
Ég hef fundið nýjan þátt...reyndar einungis nýjan fyrir mig
How I met your mother er nýja æðið mitt...ég mæli endalaust mikið með honum. Klassaþáttur.
Ég fór á Sólskinsdrenginn á sunnudaginn með múttu og Steinunni Fríði. Mæli hiklaust með þeirri mynd. Einhverfa er svo óútreiknanlegt fyrirbæri og þessi mynd opnaði augu manns fyrir svo mörgu. Sumt var bara einum of ótrúlegt til að vera satt en allt mjög fróðlegt. Það sem mér fannst sorglegt var að svo lítil úrræði séu fyrir þessi börn hér á Íslandi. Sem er auðvitað skiljanlegt miðað við stærð og höfðatölu en vonandi verður meiri vakning hér í kjölfar aukinnar umræðu. Mér fannst einnig athyglisvert að í myndinni var sagt að einhverfir ættu í raun ekki að vera í venjulegum skóla, heldur skóla fyrir einhverfa. Þeir væru nefninlega ekki líkir öðrum fötluðum nemendum, eins og nemendum með Downs og önnur heilkenni, að einhverfir herma ekki eftir öðrum og umhverfi sínu. Þetta vantar algjörlega í alla umræðuna um skóla án aðgreiningar. Erum við að gera þessum hóp slæmt með að hafa þau í hópi jafnaldra? Er þetta eini hópur barna með fötlun sem ættu að vera í sér skólum en hin gætu sótt skóla fyrir alla? Er skóli án aðgreiningar ef til vill bara draumasýn sem gengur ekki að fullu upp? Þessi athugasemd þessa fræðimans stakk mig svolítið og fékk mig til að hugsa um allt sem ég hef lært í skólanum, en þar er skóli án aðgreiningar næstum lögmál. Getur verið að sú hugmyndafræði gangi hreinlega ekki upp, ekki vegna manneklu eða fjárskorts, heldur einfaldlega vegna eðli fötlunarinnar?
Myndin skildi mikið eftir sig og vekur upp margar spurningar.
En í eitthvað aðeins léttara
Þá var ég að enda við að horfa á atvinnumennirnir okkar þar sem Logi Geirs fór á kostum. Þessir þættir lofa góðu, skemmtilegt fyrir forvitnar manneskjur að fá smá innsýn inn í celebinn
Skemmtilegir þættir með góðum húmor. Hlakka til að sjá þá næstu.
Nú ætti ég að fara að lesa eitthvað ... er að fá nett stresskast yfir því að vera varla enn byrjuð í skólanum! Þarf að hefja lesturinn... á morgun verð ég líka rosa dugleg
Fer í ræktina hálf átta! Jább sagði ykkur það ...ég verð heeelköötuð
kveð ykkur með mynd af nýju klippingunni minni, ala Edda
